Fara á efnissvæði

Um Mín Næring

Mín næring sf. var stofnað í febrúar árið 2024 af Eddu Andrésdóttur, löggiltum næringarfræðing með starfsleyfi frá Embætti Landlæknis. Markmið Mín næring sf. er að styðja einstaklinga og hópa við að ná sínum næringarmarkmiðum með faglegri og persónulegri ráðgjöf.

Edda Andrésdóttir
Edda Andrésdóttir

Áhugi minn á næringu og mataræði kviknaði á unglingsárunum og hefur fylgt mér alla tíð síðan. Það voru hins vegar veikindi innan fjölskyldunnar sem urðu vendipunktur - þar fékk ég að sjá af eigin raun hversu öflug næring getur verið fyrir almennt heilbrigði. Þessi reynsla kveikti löngun hjá mér til að starfa innan fræðanna og aðstoða aðra við að nýta næringu til að bæta lífsgæði sín og heilsu.